Torfi Tímoteus Gunnarsson er genginn í raðir KA og mun leika með liðinu næsta sumar.
Þetta var staðfest í dag en Torfi er 20 ára gamall varnarmaður sem gerir lánssamning við KA frá Fjölni.
Torfi hefur allan sinn feril leikið með Fjölni og á að baki fjölmarga leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Eftir fall Fjölnis úr efstu deild síðasta sumar var ljóst að Torfi myndi leita annað.