fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Kynning

Verslunin Móðurást: Býður upp á allt fyrir ungbarnið

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 2. febrúar 2019 13:00

Guðrún veit sitthvað þegar kemur að brjóstagjöf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunin Móðurást á sér merkilega forsögu en eigandinn, Guðrún Jónasdóttir, hóf árið 1992 að kaupa brjóstadælur og leigja þær út. „Ég eignaðist fyrirbura 1987 og upp úr því stofnuðum við nokkur saman stuðningshóp fyrir fyrirburaforeldra. Þá áttaði ég mig á því að þetta vantaði hér á Íslandi. Ég fór því að kaupa mjaltavélar dýrum dómum og leigja þær út,“ segir Guðrún.

Móðurást
Mjaltavél.

Frumkvöðlastarfsemi

Þegar Guðrún stofnaði verslunina var um sannkallaða frumkvöðlastarfsemi að ræða sem rekin var af fallegri hugsjón. „Svona var enginn að gera á Íslandi og ég gerði mér fljótt grein fyrir því að það vantaði mikið upp á þjónustuna við mæður nýfæddra barna.“ Starfsemin tók smám saman að vaxa og breikka og Guðrún fór að selja ýmsan skyldan varning. Fyrst var hún bara með þetta heima hjá sér en árið 2002 opnaði hún verslunina Móðurást sem í dag er bæði verslun við Laugaveg 178 og vefverslun.

Bestu smekkirnir.

Brjóstaráðgjöf

„Ég veiti líka brjóstagjafarráðgjöf fyrir konur sem þurfa á slíku að halda en ég er menntaður brjóstagjafarráðgjafi. Sérhæfing mín felst í þessu ásamt því að ég sel allt sem snertir brjóstagjöf, allt sem gæti þurft við mismunandi aðstæður við brjóstagjöf,“ segir Guðrún, sem segir starfið mjög gefandi og hún sé lánsöm að fá að starfa við áhugamál sitt og hugsjón, ekki séu allir svo heppnir.

Ýmsar vörur fyrir móður og barn.

Mjaltavélar, ungbarnavogir, snuð, leikföng, fatnaður, barnavagnar…

Fyrir mæður með börn á brjósti fæst mikið úrval af undirfatnaði í Móðurást, auk þess sem bæði mjaltavélar og ungbarnavogir eru leigðar út. Í versluninni fást ýmsar ungbarnavörur, sem henta vel fyrir börn frá fæðingu fram á annað ár, allt frá snuðum, leikföngum og fatnaði, til Silvercross-barnavagna og kerra, svo eitthvað sé nefnt. Þroskaleikföng frá Lamaze og Chicco eru vinsæl til jólagjafa. Dúkkan Lottie er einnig vinsæl fyrir eldri börn, hún er í réttum stærðarhlutföllum og einnig fæst fjöldi fylgihluta fyrir hana.

Móðurást
Leikföng handa þeim allra yngstu.

Nánari upplýsingar má nálgast á vefversluninni modurast.is. Sumar vörur eru eingöngu til sölu í vefversluninni en það er engu að síður hægt að sækja þær í verslunina. Margir viðskiptavinir skoða vörurnar vandlega á vefnum en koma síðan í verslunina til að skoða betur og fá ráðgjöf.

Móðurást
Lottie dúkkurnar vinsælu.

Vefverslun: modurast.is

Móðurást er staðsett að Laugavegi 178, við hliðina á gamla útvarpshúsinu.

Sími: 564-1451

Netfang: modurast@modurast.is

Opnunartími er mánudaga–föstudaga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá 12 til 16.

Alecto Peace of Mind. Heyrnahlífar fyrir börn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7