Alda Karen Hjaltalín, sem hefur vakið athygli undanfarið sem fyrirlesari, er fordæmd af mörgum fyrir meinta lausn hennar við fjölgun sjálfsvíga á Íslandi. Hún gekk svo langt í gær í viðtali við Ísland í dag að segja að ástæða endurkomu hennar væri að leysa sjálfsvígsvandamálið.
„Ég komst að því að í fyrra, 2018, var rosalega mikið af sjálfsvígum, hérna á Íslandi. Það var alveg hrikalega mikið og ég var að koma til landsins, held ég tvisvar, þrisvar á síðasta ári og það var alltaf einhver að koma úr jarðarför eða fara í jarðarför þar sem þetta var orsökin. Þetta er stærsti sjúkdómur sem skekur mannkynið og það er hugsunin „ég er ekki nóg“. Það er svo leiðinlegt að þetta er stærsti sjúkdómurinn af því að lausnin við þessu er svo einföld, það er bara setningin „þú ert nóg“. Þannig að þessi viðburður er settur upp til heiðurs þeirra sem héldu að þeir væru ekki nóg. Ég vil bara breiða út þennan boðskap eins mikið og ég get,“ sagði Alda Karen í viðtalinu á Stöð 2 í gær.
Líkt og kemur fram í viðtalinu þá mun hún halda sjálfshjálparnámskeið í Laugardalshöllinni á föstudaginn. Miðaverð er tæplega 13 þúsund krónur. „Alda svarar öllum þeim spurningum um lífið og heilann sem hún hefur fengið svör við í gegnum tíðina ásamt því að tala við Guðna Gunnarsson lífsráðgjafa og Sigríði A. Pálmarsdóttir hjúkrunarfræðing og dáleiðara um sjálfsdáleiðslu og mátt athyglinnar,“ segir í lýsingu viðburðarins.
Sjá einnig: Alda Karen höfð að háði og spotti fyrir furðuleg ráð
Áður hefur Alda Karen hvatt fólk til að kyssa peninga og varð það einn helsti brandari Íslendinga á Twitter um tíma. Nú er fólki þó ekki hlátur í huga. Ingvi Þór Sæmundsson íþróttafréttamaður skýtur fast á þennan boðskap Öldu Karenar á Twitter.
Engar áhyggjur þunglynda þjóð, Alda Karen er mætt á klakann til að lækna okkur. Hvernig? Þú ert nóg! Snákaolía gegn sjálfsvígum. Eflaust meinar hún vel en þetta er svo mikið malbik að það nær ekki nokkurri átt. Lára miðill okkar tíma.
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) January 15, 2019
Alda Karen sjúklega framtakssöm og dugleg, greinilega vel lesin og klár
EN
Það þarf örlítið, tja heilmikið, meira en “þú ert nóg” til að ná tökum á þunglyndi og koma í veg fyrir sjálfsvíg.
Þunglyndi er meira en lélegt hugarfar
— Karitas Harpa (@karitasharpa) January 14, 2019
Það hefði verið svo næs, þegar ég stóð inni á baðherberginu í kjallaraíbúðinni hjá foreldrum mínum, með lúkurnar fullar af pillum, að einhver hefði bara sagt við mig að ég væri nóg.
— Atli Jasonarson (@atlijas) January 14, 2019
Langaði að gráta úr reiði þegar ég sá þetta. Gerir svo lítið úr andlegum veikindum! Það er alveg næs að heyra svona lagað en þetta er ekki að fara að laga heilastarfsemina okkar??
— Sigga Lena (@sigridurlenag) January 14, 2019
— ? Donna ? (@naglalakk) January 14, 2019
Ég trúi því alveg að fólk sé að meina vel, og hei þið eruð öll fokking nóg, en getum við aðeins stigið til baka og kannski ekki blandað flóknum sjúkdómum inn í lifecoachið okkar
— Elísabet Brynjars (@betablokker_) January 14, 2019