Nikola Vlasic, leikmaður Everton, hefur skotið föstum skotum á fyrrum stjóra liðsins, Sam Allardyce.
Allardyce tók við af Ronald Koeman hjá Everton á síðustu leiktíð eftir mjög slaka byrjun Hollendingsins.
Vlasic var fenginn til Everton af Koeman en hann kostaði tíu milljónir punda og fékk sex leiki undir Allardyce.
Hann var þó ekki hrifinn af því að vinna með Stóra Sam. Vlasic spilar í dag með CSKA Moskvu á láni.
,,Liðið var hrætt við allt saman og þá sérstaklega stuðningsmennina,“ sagði Vlasic.
,,Allt breyttist eftir að Koeman fór. Fótboltinn sem við spiluðum undir Allardyce var ömurlegur, ef það væri hægt að kalla þetta fótbolta.“