Jose Mourinho stjóri Manchester United verður ekki rekinn úr starfi sínu í bráð. Þetta fullyrðir Guardian.
Manchester United er í slæmri stöðu eftir tap gegn Liverpool á Anfield í gær.
Liðið þarf kraftaverk til að ná Meistaradeildarsæti á þessari leiktíð, spilamennska liðsins hefur verið slök.
Mourinho er á sínu þriðja tímabili með liðið og eftir ágætis tímabil í fyrra, hefur allt hrunið í ár.
Veðbankar telja lang líklegast að Mourinho verði rekinn næstur úr starfi.
Líklegastir til að verða reknir:
Jose Mourinho – 7/4
Roy Hodgson – 5/1
Sean Dyche – 10/1
Rafa Benitez – 12/1
David Wagner – 16/1
Ralph Hassenhuttl – 33/1
Marco Silva – 40/1