fbpx
Föstudagur 26.september 2025
Eyjan

Oddviti segir sig úr Miðflokknum vegna Klaustursmálsins: „Ég persónulega og við öll höfum skaðast“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 7. desember 2018 11:03

Helga K. Haug Jonsdóttir. Mynd-Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Kristín Haug Jónsdóttir, sem var oddviti Miðflokksins á Akranesi, er hætt í flokknum. Ástæðan er framkoma sexmenninganna í Klaustursupptökunum, sem hún segir einkennast af kvenfyrirlitningu og níðs í garð minnihlutahópa. Segist hún miður sín og skorar á hlutaðeigandi að segja af sér þingmennsku:

„Ég er bara miður mín yfir hegðun manna og umræðunni síðustu daga. Eftir að hafa hlustað á upptökur af svokallaða Klausturs máli þá get ég ekki annað en skorað á þá sem eiga hlut að máli að segja af sér þingmennsku og axla ábyrgð. Þetta er ekki það sem ég stend fyrir, kvenfyrirlitning og níð á minnihlutahópa. Þið ættuð að skammast ykkar fyrir talsmáta ykkar. Axlið ábyrgð strax. Svona eiga kjörnir fulltrúar ekki að haga sér. Það er til fullt af góðu fólki sem getur tekið við af ykkur. Þó þið haldið annað.“

Helga segist sjálf hafa beðið skaða vegna málsins, sem og allir sem kenni sig við Miðflokkinn:

 „Ég sé engar yfirbætur með hegðun ykkar. Ég persónulega og við öll höfum skaðast. Við lögðum mannorð okkar við þennan flokk og þessa forustu og ekki má gleyma fólkinu sem kaus okkur. Svo er hegðun manna á alþingi er orðin þannig að allir ættu að líta í eigin barm. Virðing á alþingi hverfur með þessum hætti og ekki var hún nú mikil fyrir. Þið þingmenn eigið að vinna fyrir fólkið í landinu og vera fyrirmynd þess. ekki sitja í skotgröfunum og níða hvort annað. Og ekki batnar það þegar Borgarleikhúsið býður fólki ókeypis að koma og hlæja að gerendum og þolendum þessa máls. Er þetta það sem við ætlum að kenna börnunum okkar í komandi framtíð ? Ég undirrituð segi hér með skilið við Miðflokkinn.“

Áður hafði Vilborg Hansen, varamaður í bankaráði Seðlabankans fyrir hönd Miðflokksins, sagt sig úr flokknum vegna Klaustursmálsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: SA reyna að slá ryki í augu fólks – skammast sín samt pínulítið

Orðið á götunni: SA reyna að slá ryki í augu fólks – skammast sín samt pínulítið
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorgerður Katrín: Lýðræðið snýst ekki bara um leikreglur heldur líka gildi einstaklinganna – popúlisminn er ógn

Þorgerður Katrín: Lýðræðið snýst ekki bara um leikreglur heldur líka gildi einstaklinganna – popúlisminn er ógn
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flækjusaga af rugluðu regluverki

Sigmundur Ernir skrifar: Flækjusaga af rugluðu regluverki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ráðherra afboðar þátttöku á haustfundi SVEIT eftir áskorun Eflingar

Ráðherra afboðar þátttöku á haustfundi SVEIT eftir áskorun Eflingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hvernig tæki Kjartan fjármál föstum tökum? Glímuskjálfti einkennir minnihlutann í borginni

Orðið á götunni: Hvernig tæki Kjartan fjármál föstum tökum? Glímuskjálfti einkennir minnihlutann í borginni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að geta bara gert eitt í einu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að geta bara gert eitt í einu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áhrifarík þingræða Heiðu – „Sagðist hafa íhugað sjálfsvíg kvöldið áður“

Áhrifarík þingræða Heiðu – „Sagðist hafa íhugað sjálfsvíg kvöldið áður“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Lilju berst stuðningur úr óvæntri átt – hefnd og sögulegar sættir?

Orðið á götunni: Lilju berst stuðningur úr óvæntri átt – hefnd og sögulegar sættir?