Það er oft erfitt fyrir nýja leikmenn að aðlagast í ensku úrvalsdeildinni enda um gríðarlega erfiða deild að ræða.
Stuart Armstrong, leikmaður Southampton, hefur ekki fengið mikið að spila á tímabilinu en hann kom til félagsins í sumar.
Armstrong viðurkennir að hann sé ekki ánægður á bekknum en hann hefur aðeins byrjað tvo leiki í úrvalsdeildinni.
,,Sem einstaklingur vildi ég prófa eitthvað nýtt, ég vildi fá nýja áskorun. Ef ég hefði neitað þá myndi ég sjá eftir því í dag,“ sagði Armstrong.
,,Ég get ekki sagt að ég sakni skoska fótboltans. Ég átti minn tíma þar og er þakklátur fyrir það.“
,,Það er alltaf erfitt þegar þú ert ekki að spila eða byrja leiki því það vill enginn sitja á bekknum.“
,,Ég er ekki sá þolinmóðasti en þarf að aðlgast. Ég er í annarri deild, ég var í átta ár í Skotlandi.“