Romelu Lukaku framherji Manchester United og Belgíu er að glíma við meiðsli. Tæpt er að hann spili gegn Íslandi í Þjóðadeildinni á morgun.
Lukaku hefur verið slakur með United á þessu tímabili en með Belgíu virðist hann alltaf finna taktinn.
Ísland heimsækir Belgíu í Brussel en um er að ræða síðasta leik Íslands í Þjóðadeildinni sem leikið hefur liðið grátt.
Ísland verður án lykilmanna en Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Emil Hallfreðsson og fleiri eru fjarverandi.
Ef Lukaku verður ekki með er ljóst að Roberto Martinez mun byrja með tíu réttfætta leikmenn.
Remarkable: if Romelu Lukaku doesn’t get fit for the game against Iceland, Roberto Martínez will line-up 10 natural right-footed players (only 4 lefties left in the squad of 25). The only left-footed starter… Thibaut Courtois. Michy Batshuayi is ready to replacd Lukaku. #mufc pic.twitter.com/4Ms2GRko5t
— Kristof Terreur ? (@HLNinEngeland) November 14, 2018