Juventus á Ítalíu hefur mikinn áhuga á að fá miðjumanninn Paul Pogba í sínar raðir á nýjan leik.
Bæði enskir og ítalskir fjölmiðlar greina frá því en Pogba yfirgaf Juventus fyrir Manchester United árið 2016.
Hann er talinn vera að íhuga stöðu sína á Old Trafford og gæti freistað þess að snúa aftur til Ítalíu á næsta ári.
Samkvæmt nýjustu fregnum er Juventus tilbúið að láta United fá leikmann á móti og mega þeir velja á milli þriggja.
Það eru varnarmaðurinn Medhi Benatia, bakvörðurinn Alex Sandro og framherjinn Mario Mandzukic.
Sandro hefur áður verið orðaður við enska stórliðið en hann fær mun meira að spila en þeir Mandzukic og Benatia sem eru varamenn í dag.