fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Eyjan

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og SFR sameinast

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 9. nóvember 2018 13:28

Árni Stefán Jónson, formaður SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og Garðar Hilmarsson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félagsmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélags samþykktu sameiningu félaganna í allsherjar atkvæðagreiðslu sem lauk rétt í þessu, en meirihluti atkvæða beggja félaga samþykkti sameininguna.

Alls tóku 40,75% félagsmanna SFR þátt í atkvæðagreiðslunni og féllu atkvæði þannig:

57,25% sögðu já en 37,07% sögðu nei, en 5,68% tóku ekki afstöðu.

Hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar féllu atkvæði þannig að 77,2% sögðu já en 17,56% sögðu nei, en 5,5% tóku ekki afstöðu. Alls tóku 27,34% félagsmanna St.Rv. þátt í atkvæðagreiðslunni.

„Forysta félaganna fagnar þessum úrslitum og þakkar öllum þeim fjölda félagsmanna sem kynntu sér málið og tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. Við lítum björtum augum til framtíðar og þeirra tækifæra sem stærra og sterkara stéttarfélag mun gefa okkur. Sameinað félag mun vera betur í stakk búið til þess að mæta verkefnum framtíðarvinnumarkaðarins. Við munum í nýju félagi standa vörð um réttindi og kjör félagsmanna og leitast við að auka þjónustuna. Þetta verða sameiginleg verkefni okkar næstu misserin og munu trúnaðarmenn sem og félagsmenn allir vera virkjaðir í því starfi,“

segir í tilkynningu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Golfhöggið á Hönnu Katrínu geigaði – „Kannski komumst við í fyrramálið“

Golfhöggið á Hönnu Katrínu geigaði – „Kannski komumst við í fyrramálið“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Steindautt samband

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Steindautt samband
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þetta er ræðukóngurinn á yfirstandandi þingi – 10 málglöðustu þingmennirnir hafa samtals talað í 182,4 klukkustundir

Þetta er ræðukóngurinn á yfirstandandi þingi – 10 málglöðustu þingmennirnir hafa samtals talað í 182,4 klukkustundir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flutti sögulega jómfrúarræðu á Alþingi í gær og fetaði í fótspor móður sinnar

Flutti sögulega jómfrúarræðu á Alþingi í gær og fetaði í fótspor móður sinnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Krónutjónið nemur 500 milljörðum árlega

Sigmundur Ernir skrifar: Krónutjónið nemur 500 milljörðum árlega
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum