Hugo Lloris, markvörður Tottenham, býst ekki við að hann muni enda ferilinn hjá félaginu.
Franski landsliðsmaðurinn hefur lengi verið númer eitt hjá félaginu sem hann samdi við árið 2012.
Lloris er aðalmarkvörður franska landsliðisins og er talinn vera einn allra besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar.
Lloris er 31 árs gamall í dag og er samningsbundinn Tottenham til ársins 2022. Hann telur þó að hann verði farinn áður en ferlinum lýkur.
,,Ég held ekki. Framtíð mín er í höndum Mauricio Pochettino. Það er á hreinu,“ sagði Lloris.