Marco Ianni þjálfari hjá Chelsea kom sér í heimsfréttirnar um helgina þegar hann fagnaði hressilega fyrir framan Jose Mourinho, stjóra Manchester United.
Ianni fagnaði jöfnunarmarki Chelsea all svakalega og það gerði stjóra United brjálaðan.
Mourinho ætlaði að hjóla í hann en gæslan á Stamford Bridge náði að stoppa að allt yrði vitlaust.
Phil Neville, sérfræðingur NBC var á vellinum en hann er fyrrum leikmaður Manchester United.
,,Maurizio Sarri fagnaði og svo er þessi sem fer beint fyrir framan andlit Mourinho, hann byrjar á að fagna þarna og svo kemur hann aftur og fer beint í andlitið á Mourinho, skammarlegt,“ sagði Neville.
,,Ef ég væri Sarri þá myndi ég kalla hann á fund minn og reka hann.“