Framherjar Manchester United þurfa að sýna mun meira í leikjum liðsins segir Gary Neville, fyrrum leikmaður félagsins.
Neville vill sjá markaskorara United koma sér í betri stöður og hvetur þá til að gera það sama og þeir Sadio Mane og Mohamed Salah hjá Liverpool.
,,Þeir þurfa meira frá fremstu þremur leikmönnunum, það eru svo mikil gæði þarna,“ sagði Neville.
,,Ef þú horfir á Romelu Lukaku, Alexis Sanchez, Anthony Martial og Marcus Rashford þá þurfa þeir meira frá þeim. Ég vil sjá fleiri hlaup framhjá Lukaku.“
,,Ég vil sjá vængmennina, hverjir sem þeir eru, gera það sem Sadio Mane og Mohamed Salah gera hjá Liverpool. Þeir taka þröng hlaup inn völlinn.“
,,Ég er ekki að segja að þeir þurfi að spila þröngt en hvar sem þú spilar þá verðuru að enda þar sem þú getur skorað mörk.“