Maxwel Cornet, leikmaður Lyon í Frakklandi, er að íhuga að yfirgefa félagið en hann er óánægður.
Cornet hefur aðeins komið inná í sex leikjum á tímabilinu og er varaskeifa þessa stundina.
Þessi 22 ára gamli leikmaður er með tilboð frá öðrum félögum og gæti farið í janúar.
,,Ég skemmti mér bara þegar ég er á vellinum. Að spila meira er það sem ég sakna mest,“ sagði Cornet.
,,Ég held að ég hafi sýnt það gegn Manchester City að stjórinn ætti að treysta mér í stórum leikjum.“
,,Ég fel það ekki, ég er með tilboð á borðinu og ég hef áhuga á að fara. Félagið sagðist ætla að treysta á mig en ég spila lítið.“