Barcelona hefur áhuga á að fá Branislav Ivanovic, varnarmann Zenit Pétursborgar í janúar. Frá þessu er greint í dag.
Samuel Umtiti er að glíma við meiðsli á hné og óvíst er hvenær hann verður leikfær.
Ivanovic er 34 ára gamall en hann lék lengi vel með Chelsea og reyndist félaginu afar vel.
Barcelona sýndi honum áhuga þá en Ivanovic gæti komið frítt til félagsins í janúar.
Samningur hans við Zenit er á enda næsta sumar og hefur hann unnið þannig starf að félagið gæti leyft honum að elta draum sinn.