Íslenska landsliðið fær verðugt verkefni í kvöld er liðið mætir heimsmeisturunum í Frakklandi.
Um er að ræða vináttuleik sem fer fram ytra en Ísland spilar svo gegn Sviss í Þjóðadeildinni á mánudag.
Gengi Íslands hefur ekki verið gott undanfarið og er ljóst að verkefnin gerast ekki mikið erfiðari en í kvöld.
Frakkar tefla fram sterku byrjunarliði í Guingamp og eru margar stjörnur sem fá pláss.
Hér má sjá hvernig Frakkarnir byrja.