fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Fókus

Eyrún Ósk flytur Ljóða-hugleiðslu um frið og kærleika

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 11. október 2018 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag kl. 20, í friðarviku Reykjavíkurborgar, stendur Eyrún Ósk Jónsdóttir, skáld og leikkona fyrir friðar-ljóðagjörning í Menningarsetri SGI búddistasamtakanna Laugavegi 178. 

Um er að ræða eins konar ljóða-hugleiðslu þar sem flytjandinn leiðir áhorfendur í einskonar kyrrðar ferðalag með ljóðaupplestri en öll ljóðin fjalla um frið og kærleika og sannkölluð kyrrðar tónlist ómar undir upplestrinum. Áhugaverð og nýstárleg tilraun með ljóðlistina.

Leikstjóri er Hildur Kristín Thorstensen en tónlistina samdi Viktor Aron Bragason. Öll ljóðin eru eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur.

Verkið var áður flutt á alþjóða friðardaginn í Fríkirkju Hafnarfjarðar og á fjáröflunarkvöldverði hjá Múltíkúltí.

,,Það hljómar kannski eins og þversögn en mér sýnist sem fátt sé meira ögrandi og krassandi en umræða um frið, ást og kærleika. Við getum verið svo ótrúlega hrædd við allt sem gæti talist væmið og einlægt, tengjum það jafnvel við heimsku og barnalega heimsmynd. Í heimi þar sem normalisering á hatursorðræðu og óttaáróðri fer vaxandi skal ég halda áfram að ögra með minni persónulegu hjarta- og kærleiksbyltingu og tala skammlaust fyrir friði ást og kærleika,“ segir Eyrún Ósk.

 

Hildur, Eyrún Ósk og Viktor.

Eyrún Ósk hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Eyrún Ósk Jónsdóttir skáld vann bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2016 og hlaut í ár starfsstyrk úr Höfundasjóði RSÍ. Eyrún á baki feril sem rithöfundur, leikari og leikstjóri. Hún hefur sent frá sér fjórar skáldsögur, eina myndskreytta barnabók og fjórar ljóðabækur. Hún hefur skrifað fjölda leikrita sem hafa verið sett upp í leikhúsum hérlendis og erlendis auk þess sem hún hefur skrifað kvikmyndahandrit, greinar, fyrirlestra og útvarpserindi.

Hildur Kristín Thorstensen leikstjóri útskrifaðist af listabraut frá Fjölbrautarskólanum í Garðbæ árið 2014 og fór því næst til Huittinen í Finnlandi í sviðslistarnám við Länsi-Suomen opisto og loks í leiklistarnám við Cours Florent í París. Nú er hún í námi við Söngskólann í Reykjavík og stefnir á að klára 8. stigið. Í fyrra gaf hún út fyrstu ljóðabók sína Hugljúfar minningar. Friðar-ljóðagjörningurinn er fyrsta leikstjórnar verkefnið hennar eftir leiklistarnámið.

Viktor Aron Bragason tónsmiður er tónlistarmaður sem hefur meðal annars samið tónlist fyrir leikhús, stuttmyndir, dansverk ofl. Hann hefur spilað í fjölda hljómsveita en spilar nú með hljómsveitinni Beware the Blue Sky.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga
Fókus
Fyrir 2 dögum

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sunneva gáttuð að ungir krakkar séu farnir að sækjast aftur í þetta – „Náttúrulega alveg galið“

Sunneva gáttuð að ungir krakkar séu farnir að sækjast aftur í þetta – „Náttúrulega alveg galið“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Skilur ekkert í myndinni sem raunveruleikastjarnan birti af honum – „Uuu… hvað gerðirðu við andlitið mitt?“

Skilur ekkert í myndinni sem raunveruleikastjarnan birti af honum – „Uuu… hvað gerðirðu við andlitið mitt?“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“