Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
Pep Guardiola hefur útilokað að Manchester City kaupi Kylian Mbappe. (Independent)
Stjórn Barcelona skiptist í tvær fylkingar þegar kemur að því að kaupa Paul Pogba frá Manchester United í janúar. (ESPN)
Pogba ætlar að fara frá United í janáur ef Jose Mourinho verður áfram stjóri. (Sun)
Real Madrid hefur áhuga á Aaron Ramsey miðumanni Arsenal. (Teamtalk)
Arsenal hefur áhuga á Nicolas Pepe kantmanni Lille. (Mirror)
Wolves hefur áhuga á Scott Mckenna varnarmanni Aberedeen. (Sun)
Útsendarar United óttast að slæmt ástand hjá félaginu verði til þess að leikmenn vilji ekki koma. (Express)
Mourinho er nánast einn á báti en hann talar ekki við Antonio Valencia fyrirliða félagsins. (Mail)
Mauricio Pochettino mun aldrei taka við Barcelona því hann var eitt sinn leikmaður Espanyol. (Standard)
Danny Drinkwater er ekki stressaður yfir stöðu sinni hjá Chelsea þrátt fyrir að komast ekki í hóp. (Telegraph)