Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
——
Paul Pogba var tjáð að hann yrði aldrei aftur fyrirliði hjá Manchester United eftir að hann sagði Jose Mourinho að hann vildi fara til Barcelona. (Mail)
Pogba hefur gagnrýnt taktík United og vill fara aftur til Juventus. (Tuttosport)
United vill meira en 200 millljónir punda fyrir Pogba. (Mirror)
Real Madrid vill fá Cristiano Ronaldo aftur frá Juventus. (ESPN)
Ronaldo og Lionel Messi eru mikið gagnrýndir fyrir að mæta ekki á verðlaunahátíð FIFA. (Marca)
Joachim Low þjálfari Þýskalands var bannað að mæta á æfingasvæði Arsenal til að ræða við Mesut Özil. (Bild)
West Brom er að ganga frá samningi við Bakary Sako fyrrum kantmann Crystal Palace. (Sky)
Arsenal vil fá Ismaila Sarr 20 ára kantmann Rennes. (Mirror)
Roman Abramovich vill fá 3 milljarða pudna fyrir Chelsea sem er til sölu. (Bloomberg)
Aston Villa og Sheffield Wednesday vilja bæði fá Gary Cahill frá Chelsea. (Sun)