Liverpool á Englandi fékk til sín tvo nýja miðjumenn í sumar þá Naby Keita og Fabinho en sá fyrrnefndi hefur byrjað marga leiki.
Framtíð miðjumannsins Georginio Wijnaldum var í óvissu eftir komu tvímenningana og var hann orðaður við brottför.
Wijnaldum segir þó að nýju leikmenn Liverpool hafi hjálpað sér mikið og vonar að félagið haldi áfram að kaupa bestu leikmennina.
,,Ég tel að það sé gott að það séu margir góðir leikmenn hérna því það gerir þig betri á æfingum,“ sagði Wijnaldum.
,,Liverpool er stórt félag og mun alltaf kaupa stór nöfn. Það veldur mér ekki áhyggjum ef þeir kaupa leikmann.“
,,Allir leikmenn þurfa að sýna það á æfingum að þeir eigi að byrja leiki. Þegar þú færð sénsinn þá þarftu að vera tilbúinn.“
,,Ef einhver miðjumaður gerir vel á þessu tímabili þá gæti Liverpool keypt hann fyrir næstu leiktíð og þá er meiri samkeppni á miðjunni. Þannig virka stórlið.“