,,Það voru veiðimenn í Leirá í Leirársveit í gærdag og þeir settu í 11 fiska, 4 laxa og restin var sjóbirtingur,“ sagði Stefán Sigurðsson er við spurðum um Leirána þar sem ennþá er verið að veiða á fullu þessa dagana.
,,Stærsti fiskurinn var 73 cm og þessir veiðimenn misstu miklu stærri fisk. Þetta var mikið fjör hjá þeim,“ sagði Stefán ennfremur.
Mynd. Lax kominn á land í Leirá í fyrradag