Kylian Mbappe er líklega mest spennandi knattspyrnumaður í heimi í dag en hann er í eigu PSG.
Mbappe var frábær á HM í sumar þegar Frakkland varð Heimsmeistari.
Hann elskar Pele sem er einn besti knattspyrnumaður sögunnar og horfir mikið upp til hans.
Pele ákvað að senda honum gjöf, Mbappe fékk Santos treyju með skilaboðum frá Pele.
Mbappe birti mynd af því á Twitter og þakkaði kónginum, eins og hann orðaði það fyrir.