Það var allt vitlaust fyrir utan hótel Juventus á Spáni í nótt en þar er liðið að undirbúa sig undir leik í Meistaradeildinni.
Klukkan 03:00 í nótt var kveikt á flugeldum og fullt af fólki var mætt með læti fyrir utan hótelið.
Juventus heimsækir Valencia í fyrstu umferð í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
,,Hópur fólks kveikti á flugeldum og voru með læti fyrir utan hótelið í morgun, þeir voru einnig með borða sem niðurlægðu leikmenn Juventus,“ segir talsmaður lögreglunnar á Spáni.
Cristiano Ronaldo mun í kvöld leika sinn fyrsta leik sinn með Juventus í Meistaradeildinni en liðin eru einnig með Manchester United og Young Boys í riðli.