fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
Fréttir

1600 manns náðu í Borgarstjórann á Deildu sama dag og Héraðsdómur staðfesti lögbann

Segir bann ekki virka – Auðvelt að komast framhjá banninu – eigandi sendir fingurinn

Auður Ösp
Mánudaginn 17. október 2016 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkert lát er á vinsældum Deildu þrátt fyrir ítrekuð lögbönn hjá dómstólum. Nú þegar þessi frétt er skrifuð eru yfir 1600 manns búin að sækja þáttinn. Borgarstjórinn er flaggskip vetrardagskrár Stöðvar 2 og var ýtt úr vör í gær. Þátturinn er úr smiðju Jóns Gnarrs sem leikur titilhlutverkið, sjálfan borgarstjórann. Á meðan hundruð Íslendinga voru að sækja þáttinn staðfesti Héraðsdómur Reykjavíkur lögbann á fjarskiptafélögin Símafélagið og Hringiðuna frá því í október 2015. Í banninu felst að félögunum er meinað að veita netaðgengi að vefsvæðunum Deildu og Piratebay ásamt lénum sem vísa á sömu svæði. Hefur STEF Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar verið í forsvari fyrir umræddar aðgerðir en óvíst er hvort þær muni skila sér.

Einfalt að fara framhjá banninu

Uppruna málsins má rekja til þess að sambærilegt lögbann var lagt á stærstu netþjónustufyrirtæki landsins í október árið 2014, en Símafélagið og Hringiðan fylgdu ekki því fordæmi. Að ósk STEF fyrirskipaði Héraðsdómur Reykjavíkur lögbann á aðgang netnotenda Vodafone og Hringdu að torrentvefsíðunum deildu.net, deildu.com, thepiratebay.se, thepiratebay.sx og thepiratebay.org. sem íslensk Var þetta í fyrsta sinn sem fjarskiptafyrirtæki voru látin loka á tilteknar vefsíður vegna höfundaréttar.

Dómurinn féllst ekki á ábendingu Vodafone um að lögbannið myndi hafa takmarkaða þýingu þar sem að netnotendur gætu með einföldum hætti komist framhjá lögbanninu með því að nota svokallaðar staðgengils- eða proxy-þjónustur en þær þjónustur öllum aðgengilegar á vefnum.

Sama dag og úrskurður héraðsdóms var kveðinn upp opnaði Deildu síðan vefsíðu sína á öðru léni: Iceland.pm.

Ólíklegt að bann hafi áhrif

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Meðal þeirra sem hafa áður látið orð falla um lögbann á Deildu er Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.

„Proxy-þjónar og DNS þjónustur hljóma kannski eins og geimverumál fyrir hellingi af fólki, en þetta eru mjög einfaldar þjónustur og eitt af því fyrsta sem nokkurt tölvunörd lærir um netmál yfirhöfuð. Að gera þessa þekkingu tortryggilega er sambærilegt við að gera fyrstu blaðsíðurnar í netfræðum tortryggilegar.“

Sagði Helgi þá að ólíklegt væri að bannið hefði nokkur áhrif. Í frétt Vísis frá 2014 var haft eftir þingmanninum að hann myndi ekki hika við að deila sinni þekkingu á hjáleiðum.

„Ég mun ekki hika við það í eina sekúndu að deila einfaldri tæknilegri þekkingu til þess. Enda er hún einföld, allir ætti að þekkja hana og hafa aðgang að henni.“

Þá sagði Helgi jafnframt í sama viðtali:

,,Það er tæknibylting í gangi og þeir munu lifa af sem munu aðlagast. Nú er verið að streitast á móti og það mun að sjálfsögðu mistakast. Áhyggjur mínar af þessu lögbanni eru ekki þær að við missum Piratebay og Deildu.net. Áhyggjur mínar eru þær eru að höfundarréttarhafar munu átta sig á því að þetta er engan veginn nóg. Þannig að þeir munu ganga lengra. Og það verður heldur ekki nóg.

Það er ekki hægt að stjórna upplýsingum á internetinu með þessum aðferðum – þegar svona vinsælt efni er í boði – nema með gerræði. Þó svo að gerræðið sé ekki komið á, þá mun þetta ekki virka nema að gerræði sé komið á.“

Gríðarlegt tap

STEF sendir frá sér tilkynningu vegna úrskurðar Héraðsdóms í dag. Þar segir meðal annars að með þessum aðgerðum sé sé ekki verið að skerða rétt einstaklinga til tjáningarfrelsis með ólögmætum hætti, heldur sé verið að koma í veg fyrir lögbrot og vernda eignarrétt og fjárhagsafkomu höfunda, flytjenda og framleiðenda.

Yfir 90% af því efni sem Íslendingar hala niður af ólöglegum vefsvæðum sé hægt að nálgast með löglegum hætti við vefþjónustur sem eru með samninga við íslenska rétthafa.

„Fjárhagslegt tjón rétthafa er nú þegar gífurlegt af völdum ólögmætrar starfsemi af þessu tagi og sýnir nýleg könnun sem Capacent gerði að tap innlendra aðila vegna sjónvarps- og kvikmyndaefni eingöngu er 1,1 milljarður á ári. Af því tapar hið opinbera milli 350 og 450 milljón króna árlega. Við óbreytt ástand og lagaumhverfi eiga rétthafar ekki annarra kosta völ en að verja lögmæta hagsmuni sína með lögbannsaðgerðum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Deildu lifir góðu lífi

Í undirheimum internetsins lifir Deildu góðu lífi og íslenskt efni flæðir inn á síðuna bæði kvikmyndir, þættir og heimildarmyndir. Stjórnandi síðunnar hefur ítrekað sent stjórnvöldum fingurinn, nú síðast í sumar þegar greint var frá því að eigandinn hefði verið kærður ásamt nokkrum notendum. Hvatti hann íslenska notendur íslensku skráarskiptasíðunnar til að deila sem mest af íslensku efni. Þá sagði hann Félag rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndagerð (FRÍSK) ljúga.

„Mér er fjandans sama um íslenska ríkið. Þeir geta ekki gert neitt. Lokað á síðuna? Íslensk stjórnvöld geta einungis látið sig dreyma um það. Það er ómögulegt að reyna að finna út hver Afganski gúrúinn er nú þegar ég hef opinberlega tilkynnt að hlaða megi upp íslensku efni. Látum okkur sjá hvern fjárann þeir geta gert. Til fjandans með Smáís! [FRÍSK tók við]“

„Kæru not­end­ur. Mig lang­ar að biðja ykk­ur um að deila inn öllu ís­lensku efni sem þið mögu­lega getið. Allt sem þið finnið/​eigið endi­lega setjið það inn á síðuna. Sýnið að við erum öll Pirates Yarr!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?
Fréttir
Í gær

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd