FRÍSK naut aðstoðar utanaðkomandi fyrirtækis við málið
Stjórnandi íslensku skráarskiptasíðunnar Deildu.net, sem þúsundir Íslendinga nota til að sækja höfundaréttarvarið efni, hefur verið kærður. Það er Félag rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndagerð (FRÍSK) sem leggur kæruna fram ásamt öðrum höfundarréttarfélögum.
Fréttablaðið greinir frá þessu í dag.
Þar segir að félögin hafi notið aðstoðar utanaðkomandi fyrirtækis sem rannsakaði málið. Þá segir að FRÍSK eitt og sér hafi lagt fram kæru á hendur nokkrum af notendum síðunnar sem hafa hlaðið upp á hana íslenskum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.