Maurizio Sarri, stjóri Chelsea á Englandi, er ansi athyglisverður karakter en hann tók við liðinu fyrr í sumar.
Sarri hafði gert góða hluti með Napoli á Ítalíu áður en Chelsea vildi fá hann til að taka við af Antonio Conte.
Sarri er þekktur fyrir það að elska sígaretturnar sínar en talað hefur verið um að hann reyki allt að 60 sígarettur á dag.
Sarri má ekki reykja á hliðarlínunni en hann heldur þó í sígarettupakka sinn og er alltaf tilbúinn!
Skemmtilegar myndir birtust í dag af Sarri á hliðarlínunni er Chelsea vann Arsenal 3-2 á Stamford Bridge.
Myndirnar má sjá hér.