Chelsea á Englandi virðist vera búið að samþykkja tilboð Barcelona í vængmanninn öfluga Willian.
Sky Italia greinir frá þessu í dag en Barcelona lagði í gær fram sitt fimmta tilboð í Willian sem hefur verið á óskalista félagsins í allt sumar.
Chelsea hafnaði fyrstu fjórum tilboðum spænska liðsins en Barcelona bauð í gær 67 milljónir punda í Brassann.
Enska liðið hefur ákveðið að taka því boði samkvæmt Sky og mun Willian gera fimm ára samning við Barcelona.
Willian verður þrítugur í ágúst en hann hefur verið á mála hjá Chelsea frá árinu 2013 eftir dvöl hjá úkraínska félaginu Shakhtar Donetsk.