Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur ekki verið virkur á leikmannamarkaðnum í sumar.
City var nálægt því að tryggja sér Jorginho, miðjumann Napoli en hann fór á endanum til Chelsea.
Guardiola hefur ekki miklar áhyggjur af miðju liðsins þrátt fyrir brottför Yaya Toure og gæti treyst á unga leikmenn liðsins.
,,Við erum með sömu leikmennina fyrir utan herra Toure sem er farinn annað,“ sagði Guardiola.
,,Við munum ákveða hvað við gerum á síðasta deginum. Við sjáum hvað gerist í þessum leikjum, við erum með möguleika.“
,,Við erum með Fernandinho, Ilkay Gundogan og Alex Zinchenko sem geta spilað í þessari stöðu ásamt Fabian Delph.“
,,Við erum með unga leikmenn sem geta leyst þessa stöðu. Við erum með Douglas Luiz og Claudio Gomes, við sjáum til.“