Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur verslað inn nýja leikmenn til félagsins í þessum sumarglugga.
Klopp er nú kominn með nýjan markvörð en Alisson skrifaði í gær undir samning á Anfield og kemur frá Roma.
Fyrr í sumar komu þeir Naby Keita og Fabinho til Liverpool en þeir eru báðir miðjumenn.
Nabil Fekir hefur einnig verið sterklega orðaður við Liverpool en samkvæmt Klopp er ekki líklegt að það gerist í sumar.
,,Við erum með allt sem við þurfum fyrir næstu leiktíð. Ég held að við munum ekki gera meira í þessum glugga, ég er nokkuð viss,“ sagði Klopp.
Fekir vill sjálfur yfirgefa Lyon en nú gætu önnur lið reynt að tryggja sér þjónustu leikmannsins.