fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fókus

Sjónvarpsþáttaröð um Englandsdrottningu

Kolbrún Bergþórsdóttir
Fimmtudaginn 15. september 2016 20:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sýningar á sjónvarpsþáttaröðinni The Crown, sem fjallar um Elísabetu II Englandsdrottningu, hefjast á Netflix í nóvember. Þáttaröðin er sú dýrasta sem Netflix hefur framleitt til þessa. Þættirnir eru tíu og hver um sig er klukkutíma langur. Hugmyndin er að gera alls sextíu þætti um líf drottningar frá því hún gekk í hjónaband til dagsins í dag. Handritshöfundur er Peter Morgan sem gerði handritið að The Queen þar sem Helen Mirren lék drottninguna og hreppti Óskarsverðlaun fyrir frammistöðu sína.

Breska leikkonan Claire Foy leikur Elísabetu á fyrri hluta valdatíðar hennar. Foy lék titilhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Little Dorrit sem gerðir voru eftir skáldsögu Charles Dickens og fór með hlutverk Önnu Boleyn í verðlaunaþáttunum Wolf Hall. Matt Smith, sem leikið hefur Doctor Who, er Filippus prins. John Lithgow er í hlutverki Winston Churchill sem var mikill aðdáandi drottningar, Jared Harris leikur Georg VI, Victoria Harris leikur Elísabetu drottningarmóður, Vanessa Kirby er hin ódæla Margrét, systir drottningar, og Eileen Atkins leikur Mary drottningu.

Sýninga er beðið með mikilli óþreyju en frést hefur að breska konungsfjölskyldan sé nokkuð óróleg vegna þáttaraðarinnar og óttist að þar sé ekki fjallað um drottninguna og fjölskyldu hennar af nægilegri virðingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjónvarpsstjarnan óþekkjanleg á nýjum myndum – Hefur hrakað hratt

Sjónvarpsstjarnan óþekkjanleg á nýjum myndum – Hefur hrakað hratt
Fókus
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur og faðir hennar grunuð um að brugga ískyggileg launráð

Áhrifavaldur og faðir hennar grunuð um að brugga ískyggileg launráð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svona kemurðu í veg fyrir að barnið þitt verði narsissisti

Svona kemurðu í veg fyrir að barnið þitt verði narsissisti
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þetta er það sem Íslendingar vilji að erlendir ferðamenn hætti að gera

Þetta er það sem Íslendingar vilji að erlendir ferðamenn hætti að gera
Fókus
Fyrir 1 viku

Hollywood-elítan sögð hafa yfirgefið Harry og Meghan: „Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum“

Hollywood-elítan sögð hafa yfirgefið Harry og Meghan: „Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hjartaskurðlæknir varar við mat sem margir borða daglega: „Eyðileggur hjartað hægt og rólega“

Hjartaskurðlæknir varar við mat sem margir borða daglega: „Eyðileggur hjartað hægt og rólega“