Titillinn í Hafnarfjörð annað árið í röð
FH-ingar eru Íslandsmeistarar í knattspyrnu karla. Þetta varð ljóst eftir að Breiðablik og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli á Kópavogsvelli í kvöld. Von Blika um Íslandsmeistaratitilinn var veik fyrir leikinn, en þeir þurftu nauðsynlega á öllum stigunum að halda til að eygja þá von.
Þegar tvær umferðir eru eftir eru FH-ingar með 42 stig, sjö stigum meira en Breiðablik sem er í 2. sæti eftir leikinn í dag. Ekkert lið getur náð FH að stigum og er Hafnarfjarðarliðið því Íslandsmeistari annað árið í röð. Hafsteinn Briem kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik en Höskuldur Gunnlaugsson jafnaði fyrir Blika í upphafi síðari hálfleiks og þar við sat.