Patrice Evra sagði virkilega skemmtilega sögu af Cristiano Ronaldo í dag en þeir voru saman hjá Manchester United á sínum tíma.
Einn daginn bauð Cristiano félaga sínum heim í hádegismat og sagði svangur Evra að hann væri klár.
Það kom þó í ljós að Ronaldo hafði ekki mikinn áhuga á að borða og vildi frekar æfa sig fyrir leik sem var á dagskrá daginn eftir.
,,Ég vil bara gefa öllum ráð, þegar Cristiano býður þér heim til sín í hádegsiamat, hafniði boðinu,“ sagði Evra.
,,Þegar ég kom heim til hans eftir æfingu þá var bara hreinn kjúklingur á borðinu, salat og vatn. Þegar við byrjuðum að borða hugsaði ég með mér að eitthvað stórt kjöt væri á leiðinni en það kom ekki neitt.“
,,Hann kláraði matinn og stóð upp og byrjaði að leika sér með bolta. Hann bað mig svo að koma svo við gætum gefið á hvorn annan.“
,,Ég spurði hvort ég mætti klára að borða en hann sagði nei, að við ættum að byrja að gefa boltann.“
,,Eftir það þá vildi hann fara í sund, eftir það í heitapottinn og svo í gufubað. Ég var alveg búinn á því.“
,,Ég spurði hann af hverju við værum hérna, hvort við værum að borða hádegismat eða hvort þetta væri því við værum að spila leik á morgun.“
,,Ég mæli því ekki með því fyrir neinn að fara heim til Cristiano. Þessi maður er vél, hann hættir aldrei að æfa.“