Breiðablik er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna en liðið mætti KR á KR-velli í kvöld.
Aðeins eitt mark var skorað í leiknum en það gerði Alexandra Jóhannsdóttir fyrir Blika snemma í fyrri hálfleik.
Selfoss fer einnig örugglega áfram eftir 4-0 sigur á Fjölni þar sem Eva Lind Elíasdóttir gerði þrennu fyrir heimastúlkur.
Fyrr í dag áttust þá við Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir og Grindavík og vann Grindavík sannfærandi 4-0 sigur.
KR 0-1 Breiðablik
0-1 Alexandra Jóhannsdóttir
Selfoss 4-0 Fjölnir
1-0 Barbára Sól Gísladóttir
2-0 Eva Lind Elíasdóttir
3-0 Eva Lind Elíasdóttir
4-0 Eva Lind Elíasdóttir
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir 0-4 Grindavík
0-1 Rio Hardy
0-2 Rio Hardy
0-3 Steinunn Lilja Jóhannesdóttir(sjálfsmark)
0-4 Rio Hardy