fbpx
Mánudagur 04.ágúst 2025

Vicky með sína fyrstu tónleika síðan 2012

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 29. maí 2018 12:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Næstkomandi laugardag, þann 2. júní, heldur hljómsveitin Vicky tónleika á Gauknum. Þetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar frá því að hún tók sér pásu frá tónleikahaldi árið 2012.

Á Gauknum þetta kvöld munu einnig koma fram hljómsveitirnar Casio Fatso og InZeros. Húsið opnar klukkan 21 en klukkan 21.30 ætlar Vicky að frumsýna nýtt myndband við lagið String Along sem kom út síðustu viku.

Myndbandið er unnið af þeim hæfileikaríku Birtu Rán Björgvinsdóttur og Ninu Petersen sem hafa verið áberandi í stuttmynda og tónlistarmyndbandagerð síðustu misseri.

Vicky hefur ekki verið þekkt fyrir neitt annað en kraftmikinn lifandi flutning og þétt sound. Þau hafa engu gleymt og lofa mögnuðum tónleikum þar sem nýtt efnið fær að hljóma í fyrsta sinn í blandi við lög af fyrri plötum.

Miðasala á tónleikana er hafin á midi.is og kostar þúsund krónur inn, einnig er selt inn við hurð. Fyrstu gestir fá frían bjór í boði Víking.

Nýja lagið „String Along“ verður best lýst sem ekta Vicky lagi, en það má heyra hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Hið náttúrulega Wegovy – Svona líkir þú eftir lyfinu

Hið náttúrulega Wegovy – Svona líkir þú eftir lyfinu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Voru hársbreidd frá því að næla í Isak

Voru hársbreidd frá því að næla í Isak
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Harðneitar að fara frá Manchester United í sumar

Harðneitar að fara frá Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Saint-Maximin að taka mjög óvænt skref 28 ára gamall

Saint-Maximin að taka mjög óvænt skref 28 ára gamall
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Besta deildin: Jafnt í tveimur leikjum

Besta deildin: Jafnt í tveimur leikjum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Baunar á stjörnu liðsins sem sýndi öllum vanvirðingu – ,,Hann hefur beðið okkur afsökunar“

Baunar á stjörnu liðsins sem sýndi öllum vanvirðingu – ,,Hann hefur beðið okkur afsökunar“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Klárt hvert Son fer í sumar – Kveður eftir tíu ár hjá Tottenham

Klárt hvert Son fer í sumar – Kveður eftir tíu ár hjá Tottenham
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Skrímsli af manni mætti á staðinn og hélt á stórstjörnunni eins og smábarni

Skrímsli af manni mætti á staðinn og hélt á stórstjörnunni eins og smábarni