fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Kynning

Slitsterkar og smekklegar lausnir frá Epoxy Gólfum: Fallegt og endingargott gólfefni

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 28. maí 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Epoxy Gólf ehf. sérhæfa sig í epoxy gólfefnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Þessi gólfefni eru samskeytalaus og níðsterk. Þau henta því vel þar sem kröfur eru gerðar um hreinlæti og langa endingu. Starfsmenn Epoxy Gólfa hafa yfir 30 ára reynslu og fyrirtækið hefur fest sig rækilega í sessi sem þjónustuaðili fyrir iðnað, verslanir og heimili. Epoxy Gólf bjóða nú spennandi nýjungar sem meðal annars henta heimilum, verslunum, skólum, sjúkrahúsum o.fl.

Deco Line: Sjálfflæðandi slitsterkt gólfefni

„Við erum með nýja lausn sem inniheldur polyurethane og er tveggja þátta lausn eins og epoxy. En jafnframt er hægt að fá þetta efni með eiginleikum, t.d. mikilli mýkt eða mikilli hörku, allt eftir óskum kaupandans. Líkt og með epoxy-efnin sem við bjóðum upp á er hægt að fá Deco Line lausnina í alls konar litum. Þetta er sjálfflæðandi þannig að það er án samskeyta og getur flætt á milli rýma. Þessi nýja lausn er mjög hlýleg og falleg í útliti þar sem satíngljái yfirborðsins gefur aukinn glæsileika. Gólfefnið er endingargott og slitsterkt, þannig að þú þarft lítið að hugsa um að endurnýja gólfefni í framtíðinni ef búið er að leggja þetta á gólfin,“ segir Torfi Már Hreinsson, einn eiganda Epoxy Gólfa.

Gólfefnalausnin Deco Line kemur frá hollenska fyrirtækinu Quartzline og hentar fyrir heimili, skólastofnanir, íþróttahús og verslunarhúsnæði, bæði í afgreiðslu og á lager þar sem mikið álag er á gólfum.

Micro Top: Vatnsheldir veggir og gólf á baðherberginu

Önnur áhugaverð nýjung frá Quartzline sem Epoxy Gólf bjóða upp á er Micro Top. „Þetta er eins og áferðarflot nema að það er algjörlega vatnshelt. Lausnin hentar vel á gólf á heimilum og í verslunarrými og gefið hún mjög skemmtilegan karakter. Micro Top er bæði hægt að setja á gólf og veggi. Það hentar vel í blautrými eins og sturtuklefa eða á gólf og veggi baðherbergja. Við framköllum sjálfir grófleikann í efninu og þú getur fengið þetta eins gróft eða slétt og þú vilt. Því eru engar tvær niðurstöður nákvæmlega eins þó svo þær geti verið keimlíkar. Lausnin gefur hrátt og skemmtilegt útlit og hægt er að fá hana í mörgum litum,“ segir Torfi Már.

Það gildir um allt efni frá Epoxy Gólfum að fagmenn þurfa að leggja það. „Við þjálfum starfsmenn í 6 til 12 mánuði áður en þeir fá að leggja þessar gólflausnir,“ segir Torfi.

Fyrir nánari upplýsingar á þessum slitsterku og endingargóðu gólf- og veggklæðningum er best að senda fyrirspurn á netfangið epoxygolf@epoxygolf.is eða skilaboð á Facebooksíðunni https://www.facebook.com/epoxygolf/. Vefsíðan er http://epoxygolf.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
22.11.2025

Gjafahandbókin fyrir Svartan föstudag – Finndu fullkomnar gjafir á ótrúlegu verði

Gjafahandbókin fyrir Svartan föstudag – Finndu fullkomnar gjafir á ótrúlegu verði
Kynning
10.11.2025

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði
Kynning
23.01.2025

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina
Kynning
09.01.2025

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla
Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV