Það fóru fram fjórir leikir í 2.deild karla í dag og að venju var boðið upp á nóg af mörkum.
Veigar Páll Gunnarsson gerði tvö mörk fyrir lið KFG sem vann 3-2 sigur á Einherja.
KF vann sterkan 2-0 sigur á Augnablik þar sem Ljubomir Delic skoraði bæði mörk KF í leiknum.
Sindri tapaði þá heima 3-2 gegn Dalvík/Reyni og KV og Vængir Júpíters gerðu markalaust jafntefli.
Hér má sjá markaskorara dagsins.
KFG 3-2 Einherji
1-0 Jóhann Ólafur Jóhannsson
2-0 Veigar Páll Gunnarsson
3-0 Veigar Páll Gunnarsson
3-1 Númi Kárason
3-2 Númi Kárason
KF 2-0 Augnablik
1-0 Ljubomir Delic
2-0 Ljubomir Delic
KV 0-0 Vængir Júpíters
Sindri 2-3 Dalvík/Reynir
0-1 Nökkvi Þeyr Þórisson
1-1 Tómas Leó Ásgeirsson
2-1 Kristinn Justiniano Snjólfsson
2-2 Nökkvi Þeyr Þórisson
2-3 Jóhann Örn Sigurjónsson