Everton tók á móti Newcastle í mánudagsleik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld en leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna.
Það var Theo Walcott sem skoraði eina mark leiksins á 51. mínútu með skoti af stuttu færi og lokatölur því 1-0 fyrir heimamenn.
Rafa Benitez, stjóri Newcastle var svekktur með að tapa leiknum í kvöld.
„Við spilum saman sem lið en það vantaði aðeins upp á hjá okkur í kvöld, þeir unnu og þannig er það nú bara,“ sagði stjórinn.
„Við fengum tvö til þrjú fín færi og á ákveðnum tímapunkti í leiknum vorum við ansi nálægt því að skora. Ég er ánægður með vinnusemi leikmannanna en það var úrslitasendinginn sem var að klikka hjá okkur í dag.“
„Ég er mjög ánægður með leikmenn mína. Markmiðið fyrir tímabilið var að halda sér í deildinni og það hefur tekist, núna tekur næsti leikur við,“ sagði stjórinn að lokum.