Arsenal tekur á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag klukkan 12:30 og eru byrjunarliðin klár.
Arsenal er í sjötta sæti deildarinnar með 54 stig og hefur tveggja stiga forskot á Burnley sem er í sjöunda sætinu og í harðri baráttu um Evrópusæti.
West Ham er í fjórtánda sæti deildarinnar með 35 stig en sigur í dag myndi fara langleiðina með að tryggja liðinu áframhaldandi veru í úrvalsdeildinni.
Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.
Arsenal: Ospina, Bellerin, Koscielny, Mustafi, Monreal, Elneny, Xhaka, Ramsey, Iwobi, Welbeck, Lacazette
West Ham: Hart, Zabaleta, Ogbonna, Rice, Cresswell, Masuaku, Kouyate, Noble, Fernandes, Mario, Arnautovic