fbpx
Þriðjudagur 12.ágúst 2025
Eyjan

Stórvirkið Saga tónlistarinnar

Egill Helgason
Þriðjudaginn 12. apríl 2016 22:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kiljuþáttur sem datt upp fyrir í síðustu viku, þegar hvað mest gekk á í stjórnmálunum, verður sýndur aftur nú á miðvikudagskvöldið.

Í þættinum er innslag undir liðnum Bækur & staðir – þar förum við á Akranes og fjöllum meðal annars um Jón Hreggviðsson, Arnes Pálsson, Jón Óskar, Steinar Sigurjónsson og Sigurbjörgu Þrastardóttur.

Þarna er rætt við Steinunni G. Helgadóttur, sem hefur aðallega fengist við myndlist en líka ljóðagerð; hún gefur nú út fyrstu skáldsögu sína, Raddir úr húsi loftskeytamanns. Þetta er feikilega áhugaverð saga, frumleg, með einstæðu persónugalleríi.

Og svo er það hið mikla verk Saga tónlistarinnar eftir Árna Heimi Ingólfsson. Það hefur lengi verið beðið eftir bók af þessu tagi, sögu tónlistar á íslensku. Þetta er saga hinnar skrifuðu tónlistar, tónlistarinnar sem þróaðist eftir að menn hófu að skrifa nótur. Nær frá miðöldum og fram til vorra daga.

Þarna er blandað saman tónlistar- og menningarsögu, tónskáldaævum og hæfilegum skammti af tónvísindum. Það er ekki síst fengur í því að sjá skrifað í svo ítarlegu máli um tónlist á íslensku – með hugtökum á málinu ylhýra.

 

Saga_tonlistarinnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi