fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Eyjan

Síðasta Silfrið, álitsgjafi, verndari Tjarnarinnar, rónalíf

Egill Helgason
Mánudaginn 21. maí 2007 12:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðasta Silfur vertíðarinnar var í gær. Ég er kominn til London. Verð hér fram að mánaðarmótum, kem svo aftur til Íslands, fer svo aftur út. Það má búast við því að skrif hér á síðunna verði eitthvað stopulli en verið hefur undanfarið. Kominn tími til að hlaða batteríin aðeins.

— — —

Ég nenni eiginlega ekki að standa í hnútukasti við Björn Bjarnason. Hann gefst aldrei upp ólíkt mér sem er í rauninni vel við allt fólk. Bara tvennt sem ég ætla að taka fram.

Mér er ekki illa við að vera kallaður álitsgjafi. Það má alveg. Ég vann á Helgarpóstinum í gamla daga þar sem þetta heiti var búið til. Sjálfur kalla ég mig yfirleitt blaðamann. Það er gamalt og gott heiti yfir það sem ég starfa við.

Og varðandi kvæðið eftir Matthías, þá kannast ég ekki við að hafa vegið ómaklega að honum. Sagði bara að þeim sem þætti þetta gott kvæði hefðu líklega ekki mikið vit á bókmenntum.

— — —

Okkur Kára er illa við tvennt í miðbænum þar sem við búum. Mávana og rónana.

Kári spurði í gær þegar við sáum að mávagerið á Tjörninni var stærra en nokkru sinni fyrr:

"Kemur hann Gísli ekki og rekur burt mávana?"

"Jú vonandi gerir hann það," sagði ég.

"Gísli passar andarungana svo mávarnir éti þá ekki," sagði barnið.

Það er Gísli Marteinn sem er í svona miklum metum í fjölskyldu okkar. Verndari Tjarnarinnar.

— — —

Rónar eru ekki vinsælir vegna þess að þeir eru sífellt að ónáða pabba á Lækjartorgi og þar í kring. Flestir sníkja þeir pening. Ég er frekar veiklundaður og gef þeim oft klink. Einstaka róni er í áskrift hjá mér. Sumir eru ágætir menn, kurteisir, kannski beygðir. Aðrir eru uppivöðslusamir og frekir, ef til vill í dópinu.

"Voru rónar einu sinni menn?" spurði Kári í vikunni.

"Þeir eru menn," sagði ég. "En þeir hafa eyðilagt lífið fyrir sig og fjölskyldu sína."

"En þegar þeir voru litlir, voru þeir þá fullir?"

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum