
Traust á dómstólum er lélegt vegna dóma í ofbeldismálum sem ofbjóða réttarvitund almennings.
Ég er á móti alþýðudómstólum og skyndiréttlæti, en það er fáránlegt hversu réttarkerfið metur líf og limi fólks – miðað við til dæmis hvernig er dæmt í meiðyrðamálum, málum sem snúast um dauða hluti og nú síðast í máli þar sem eitthvert vesalings fólk var að brugga landa í Þorlákshöfn.
Ég held að þurfi ekkert að flækja málin meira en þetta. Það þarf miklu harðari dóma vegna ofbeldis.