fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

ESB umræðan

Egill Helgason
Mánudaginn 10. mars 2008 08:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mér sýnist að þeir sem eru andstæðastir Evrópusambandinu séu á ansi miklum flótta þessa dagana.

Maður heyrir athugasemdir eins og þessa: Verður veðrið ekki líka alltaf gott ef við göngum í ESB?

Svo er beðið eftir að einhver fari að hlæja að brandaranum.

Það er talað um að við eigum að athuga með að taka upp svissneskan franka eða norska krónu.

Íslendingar ferðast víða um heiminn. Hverju eru þeir bættari með norskar krónur farteskinu?

Annars nefndu meðlimir viðskiptanefnd sem sátu í Silfri Egils í gær merkilegan punkt. Nefndin hafði fengið í hendurnar stórt og mikið frumvarp, eitt af þeim sem berst okkur í gegnum EES samstarfið.

Með frumvarpinu fylgdu þau skilaboð að nefndin mætti ekki breyta neinu í frumvarpinu nema ef til vill nafni þess.

Svona fyrst menn eru að tala um fullveldisafsal – og landráð…

Annars er þetta stórkostleg samantekt hjá Baldri. Þá ekki síst ummæli Páls Péturssonar um að atvinnuleysi myndi aukast vegna EES samningsins, við myndum þá detta í meðaltalsatvinnuleysi í Evrópu:

„Þeir [forkólfar stéttarfélaganna] virðast loka augunum fyrir því að við erum að gerast aðilar að efnahagssvæði þar sem fast atvinnuleysi er um 10%. Með svipuðu lögmáli og vatnið rennur undan brekkunni hlýtur atvinnuleysi hér að aukast til stórra muna.“
(Páll Pétursson, umræður á alþingi 25.08.92)

Hefur maður heyrt þetta oftar?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu