fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Ævintýri í Berlín

Egill Helgason
Laugardaginn 8. mars 2008 21:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

admiralspalast_historisch.jpg

Ég rakst á Helga Björnsson fyrir tilviljun á Friedrichstrasse í Berlín. Hann sýndi mér leikhúsið sem hann stjórnar nú í Admiralspalast. Mig hafði aldrei órað fyrir því að þetta væri svona stórt. Helgi segir að húsið sem er byggt umhverfis garð hafi gólfflöt Kringlunnar. Þarna eru fjögur leikhús, hið stærsta rúmar 1700 manns í sæti, salurinn á hæðinni fyrir ofan rúmar næstum því jafn marga og Þjóðleikhúsið.

Þetta er sögufrægt hús. Þarna var upphaflega skautasvell, fólk sat prúðbúið í stúkum kringum svellið, naut veitinga og horfði á herlegheitin. Uppi voru böð, sturtur fyrir pupulinn, laugar og nudd fyrir fína fólkið.

Síðar var húsinu breytt í leikhús. Þarna sungu Comedian Harmonists. Þarna spilaði hinn ungi Yehudi Menuhin á fiðlu. Það var byggð sérstök stúka fyrir Hitler. Það var merkilegt að húsið skyldi standa eftir stríðið; allar byggingar í kring voru sprengdar til grunna. Eftir stríðið hafði óperan aðsetur þarna um skeið.

pieck.jpg

Það var þarna að Kommúnistaflokkurinn sameinaðist sósíaldemókrötunum í austrinu og úr varð Sosialistische Einheitspartei Deutschlands – flokkur nýrrar tegundar – flokkurinn sem ríkti svo í Þýska alþýðulýðveldinu. Frægt var handatak Wilhelms Pieck og Ottos Grotewohl og birtist á ótal ljósmyndum sem var dreift um landið. Þetta áttu að vera sögulegar sættir milli komma og krata – en svo var þetta auðvitað hreinn stalínistaflokkur.

Helgi fór með mig um allt leikhúsið. Við klifruðum meira að segja upp mjóan stiga upp á þak. Staðsetningin er einstök; norðurhluti Friedrichstrasse var í niðurníðslu þangað til fyrir nokkrum árum – nú er þetta að verða líflegt og skemmtilegt svæði. Stórhugurinn er mikill hjá Helga og félögum; í húsinu er mikil starfsemi og þeir hafa aflað stórra fjárhæða til að byggja upp þetta glæsilega hús.

Allt virkar það mjög ævintýralegt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu