
Það er ekki að spyrja að spillingarbælinu Orkuveitu Reykjavíkur. Maður hélt að fyrirtækið myndi taka því rólega eftir ævintýri síðustu ára: Hinn fáránlega kostnað við Orkuveituhúsið og misheppnaðar tilraunir yfirmanna OR til að auðgast á REI ævintýrinu.
En nei. Nú vilja þeir fara að nota peningana í sjóðum OR til að kaupa risastóra lóð uppi á Hálsi. Væntanlega til að sé hægt að byggja ennþá meira.
Annars er eitt merkilegt í þessu. Maður var eiginlega viss um að Guðmundur Þóroddsson yrði látinn fara – og kannski Hjörleifur Kvaran líka. En um leið og ákveðið var að Villi sæti áfram sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni lokaðist sá möguleiki.
Það var ekki hægt að láta þá sæta ábyrgð en ekki hann.
Og þeir gátu varpað öndinni léttar.