
Ég hef áður játað að mér tekst ekki að fá raunverulegan áhuga á forkosningum í Bandaríkjunum. Til þess er þetta einfaldlega of langdregið.
Mér hefur reyndar sýnst Obama vera frekar yfirborðskennd málfroðuvél. Hillary er eins og eiginmaður hennar útspekúleraður atvinnupólitíkus – en er ekki aðeins meiri súbstans í henni?
Aðallega vona ég að sá vinni sem getur sigrað frambjóðanda Repúblikana. Valdatími þess söfnuðar er orðinn nógu langur. En ég veit ekki hvort þeirra, Hillary eða Obama, er líklegra til þess.
Og svo bíð ég spenntur eftir því að sjá hvernig úrslit kosninganna virka á allt það fólk sem hefur eiginlega ekki aðra pólitík en að vera á móti Bandaríkjunum og öllu sem þau standa fyrir.
Sigur til dæmis Obama gæti flækt tilveru þess aðeins.