
Elítismi er ekki í tísku. Það er frekar í tísku að dást að því sem „gengur ofan í fólkið“. Því sem „virkar“.
Þannig er spurt í Fréttablaðskönnun hver sé besti núlifandi rithöfundur Íslands.
Svarið er Arnaldur Indriðason.
Ég er ekki búinn að skoða þetta nákvæmlega en ég spyr: Er Arnaldur betri höfundur en til dæmis Hallgrímur Helgason af því fólkið vill hann?
Það er mikið verið að flagga áhorfstölum hjá sjónvarpsstöðvunum. Þær auglýsa áhorfstölur sínar í kapp. Eins og þetta sé eini mælikvarðinn á hvað sé gott sjónvarp. En með þessum mælikvarða er síðasti þáttur Laugardagslaganna líklega besti sjónvarpsþáttur sem hefur verið gerður á Íslandi.
Í dag hefst svo miðasala á tónleika Erics Clapton.
En á fimmtudaginn flytur Sinfóníuhljómsveitinn fiðlukonsert Albans Berg.
Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að konsertinn sé miklu merkilegri en nokkuð sem Clapton hefur gert.
En ég býst ekki við að komi nema í hæsta lagi sjö hundruð manns á tónleikana þar sem hann verður fluttur.
Ég nefni það svo í lokinn að á fyrrihluta síðasta áratugar vann ég um tíma á Alþýðublaðinu með Hrafni Jökulssyni – var reyndar um síðir boðið að verða ritstjóri blaðsins en hafnaði (hefði líklega orðið síðasti ritstjórinn). Á þessum tíma held ég að blaðið hafi haft sirka sex hundruð áskrifendur, þar af hef ég á tilfinningunni að ekki færri en tvö hundruð hafi verið dánir.
En það er enn talað um að þetta sé eitthvert besta blað sem hefur komið út á Íslandi.