
Þegar Ólafur Ragnar talar um matvælaöryggi – er hann þá að spá í þann möguleika að flutningar til Íslands leggist af, að ástandið í heiminum verði slíkt að við getum ekki orðið okkur út um matvæli nema með því að afla þeirra sjálf, veiða eða rækta?
Að við verðum þá komin á svipaðan stað og þegar sirkabát sex skip komu til landsins á ári?
Í morgun vitnaði ég í viðtal við James Lovelock, höfund kenningarinnar um Gaia. Mér þykir reyndar ýmislegt benda til þess að hann sé dómsdagsruglari. Hann telur að gróðurhúsaáhrif muni tortíma 80 prósentum mannkynsins – að við eigum kannski tuttugu sæmileg ár eftir hér á jörðinni.
Er Ólafur nokkuð að vísa í það?
Það væri forvitnilegt að vita hvort ógnarmatsnefnd utanríkisráðherra er að fjalla um þetta.