
Frami Kjartans Magnúsonar er allnokkur, en hann hefur verið lengi að vinna sér inn fyrir honum – Kjartan er á þriðja tímabili sínu í borgarstjórn og nú orðinn stjórnarformaður bæði OR og REI fyrir utan að vera formaður menningar- og ferðamálanefndar.
Ásta Þorleifsdóttir er hins vegar eins og raketta. Hún var ekki einu sinni í borgarstjórninni fyrir nokkrum vikum – og hún er ekki kjörinn fulltrúi þar – en samt er hún varaformaður Orkuveitunnar, Faxaflóahafna, REI, umhverfisráðs og menntaráðs.
Semsagt fimm stórar og merkilegar stjórnir. Það er greinilegt að Ásta hefur trúnað borgarstjórans okkar. En það verður seint sagt að valddreifingin sé mikil hjá þeim.