
Nú má vera að með í fangaflutningum Bandaríkjamanna hafi verið einhverjir menn sem höfðu lítið til saka unnið. En þarna eru líka harðsvíraðir glæpamenn, ofstækismenn, terroristar sem stafar stórkostleg hætta af. Heimurinn er eilítið betri staður af því þeir náðu ekki að hrinda ofbeldsverkum sínum í framkvæmd.
Nú síðast voru gómaðir sex ætlaðir hryðjuverkamenn í Noregi og Svíþjóð. Já, á hinum friðsælu og umburðarlyndu Norðurlöndum.
Gleymum heldur ekki að eitt meginhlutverk hvers ríkis er að vernda líf þegna sinna. Við getum spurt hversu mörg mannslíf hafa bjargast vegna þessara fangaflutninga?
Abu Ghraib kemur upp í hugann. Það er enn verið að birta myndir af framferði bandarískra hermanna í því illræmda fangelsi. Það var vissulega skammarlegt. En það er sjaldnast talað um fjöldagrafir Saddams í námunda við fangelsið og þær tugþúsundir sem þar voru drepnar – þar af fjögur þúsund fangar bara árið 1984.