
Evróvision er hugsanlega mesta hommahátíð í heimi. Keppnin er gegnsýrð af menningu samkynhneigðra – sérstakri tegund af kitsi. Þeir keppendur sem ekki eru samkynheigðir líta allavega út fyrir að vera það. Svo les maður að íbúar Belgrad ofsæki samkynhneigt fólk.
Ja, þá er borgin augljóslega ekki rétti staðurinn fyrir þessa samkomu. Reykjavík með sína fjölmennu og glaðværu Gay Pride göngu væri miklu betri.
Bara verst að við eigum ekki séns með þetta lag. Það er flutt af skemmtikröftum sem taka keppnina alvarlega, vilja vanda sig, eru sómakærir – sem er algjör misskilningur á þessum vettvangi.